sunnudagur, 28. janúar 2007

Útileiga í janúar!

Það mætti halda að við byggjum í tjaldvagni þessa dagana. Við dúðum okkur á kvöldin í 2-3 peysur, tvenna sokka (angórusokka og ullarsokka), þykkar buxur og síðast en ekki síst vefjum við okkur inn í sloppana okkar. Ef að ástandið er mjög slæmt, eins og þessa dagana, skellum yfir okkur þykkum teppum og drekkum heitt kakó.

Já þetta má sko kalla ástand!!! Inni í íbúðinni okkar er ekki meira en 7°C, þrátt fyrir að ofninn sé stilltur á 5 hitar gefur hann engan hita frá sér. Til að bæta ástandið þá er vifta fyrir ofan hurðina inn á baðherbergi sem blæs KÖLDU lofti, þannig að það gustar köldu hérna inni allan daginn.

Við erum kostuleg þegar við sitjum hér hlið við hlið og horfum á sjónvarpið, ég eins og ein úr Tungunum með rauðar kinnar og rautt nef, Grétar með hettuna á hausnum og hendurnar inni í ermunum á sloppnum sínum. Þegar við síðan loksins skríðum upp í rúm á kvöldin fer ég í náttgallan (eins og Grétar kýs að kalla það) en hann samanstendur af, náttbuxum, flíspeysu, bol og að ógleymdum angórusokkunum. Ég vil einnig vekja athygli á því að þegar Grétar Örn er farinn að sofa í angórusokkum.....þá er þetta orðið svolítið sérstakt ástand.

Við lítum þó á björtu hliðarnar, janúar er senn á enda LOKSINS, febrúar er stuttur mánuður og þá er bara kominn mars....og þá er stutt í apríl sem þýðir vor! :) Maður verður að vera duglegur að sjá jákvæðu punktana í þessu þrátt fyrir að þeir geti verið dálítið langsóttir stundum.

Kveðja frá Kuldabola,
Aaarrrndíísss

Í spilun: Uffie - Pop the Glock

fimmtudagur, 25. janúar 2007

Vakinn upp af værum svefni!

Í gærkvöldi, um kl. 22.58, ákváðum við Arndís að taka í gegn kommóðuna og fataskápinn af því að við gátum einfaldlega ekki afborið lengur allt draslið sem var að leka úr hirslunum. Við vorum í tæpar 3 klst að taka allt út, henda sumu, pakka ofan í kassa, brjóta saman og raða aftur inn. Ég viðurkenni alveg að þetta jaðrar við að vera geðveiki....en þetta var búið að hvíla þungt á okkur. Þegar klukkan var að nálgast tvö skriðum við loksins upp í rúm.

Í morgun, kl. 7.45, vaknaði ég við að einhver barði allsvakalega á útidyrahurðina. Ég hrökk á fætur með blóðhlaupin augu en Arndís rumskaði ekki einu sinni. Mig grunaði að þetta væru mennirnir frá símafyrirtækinu TDC en þeir áttu ekki að koma fyrr en kl. 9.00 svo ég ákvað að vera ekkert að opna fyrir þessum manni. Lagðist bara aftur upp í rúm!

Í síðustu viku fengum við bréf um að TDC þyrfti að komast inn í íbúðina hjá okkur á þriðjudaginn síðastliðinn, einhvern tímann á milli kl. 10 og 11. Arndís tók sér frí fyrir hádegi en enginn kom. Í gær fengum við svo bréf um að þeir ætluðu að koma í dag á milli kl. 9 og 10. Þessir snillingar ákváðu að koma fyrir allar aldir.....ég er mjög hissa á að ENGINN á ganginum okkar opnaði fyrir þeim. Þeir fóru fram og til baka og börðu hjá öllum nokkrum sinnum. Rétt fyrir kl. 9 voru þeir horfnir og í póstkassanum var miði: ,,Komum 25/1 en enginn var heima. Við höfum því tekið internetið og kapalsjónvarpið úr sambandi þangað til þið hleypið okkur inn í íbúðina!” Við vorum ekki sátt með þetta svo Arndís hringdi í TDC og hraunaði allsvakalega yfir þjónustufulltrúa TDC. Þeir komu síðan um tíuleytið og voru um 60 sekúndur inni í íbúðinni.

Sumir Danir eru alveg kostulegir....vilja taka daginn alveg extra snemma. Vissuð þið að háannatími matarbúða í Danmörku er frá kl. 8-9 á laugardags- morgnum? Mér finnst ekki líklegt að margir Íslendingar myndu detta í hug að fara að versla kl. 8 á laugardagsmorgni EF það væri opið.

Í sól og vetrarblíðu í Köben,
Ørnen

sunnudagur, 21. janúar 2007

Onkel Gunnar Örn på besøg!

Á föstudaginn kom Gunnar frændi í stutta helgarferð. Ég fór fyrr úr skólanum og dreif mig út á Kastrup. Það var rosalega gaman að sjá hann aftur! Við frændurnir eru sífellt svangir svo það fyrsta sem við gerðum var að fá okkur "en med det hele", þ.e. rauð dönsk pylsa með ÖLLU. Þessi litla pylsa var aðeins upphafið af matargræðginni miklu. Við tókum svo lestina niður í bæ og heilsuðum upp á Dísu í Magasin. Hún var einmitt í hádegishléi svo við settumst niður á "Joe and the Juice" og gúffuðum í okkur samloku og heilsudrykk. Mmmmmmm...... Við frændurnir verðum alltaf að fá eftirrétt svo við fórum í sælkerabúðina í Magasin og fengum okkur ljúffenga "flødebolle".

Það yrði h*lvíti löng færsla ef ég ætti að lýsa öllum kræsingunum sem við létum ofan í okkur þessa yndislegu helgi svo ég ætla bara að telja þetta allt upp í einni bunu: pylsa, Joe samloka og djús, flødebolle, poki af Sambólakkrís, thai-matur, heil Betty Crocker súkkulaðikaka, Þristapoki, Kúlusúkkpoki, fullt af brjóstsykrum í skál, morgunverðarhlaðborð a la Holmbladsgade (bakkelsi í massavís....m.a. kaanééééélstang), 2 pítsur, myntuís, tiramisu og svo heill hellingur af gosi!!! Það fyndna við þetta sukk er að við Arndís vorum í nammibindindi....EN það er ekki annað hægt en að taka þátt í matarátinu þegar Gunnar frændi er í heimsókn. Við frændurnir, a.k.a. Ernirnir, erum stórhættulegir þegar við komum saman! ;)

Eins og þið sjáið þá erum við búnir að hafa það ansi gott um helgina....spjalla, borða, horfa á DVD, borða, rölta um bæinn, borða......já svona að mestu leyti borða. Við eigum eftir að sakna þín Gunni....núna er víst aftur komið nammibindindi. Í kvöld borðuðum við hrökkbrauð með osti og skoluðum þessu niður með vatni. Komdu sem allra allra fyrst aftur í heimsókn!!!

Þinn onkel,
Grétar Örn

miðvikudagur, 17. janúar 2007

Lítið sem ekkert að frétta!

Það er voðalega lítið að frétta frá okkur. Lífið gengur bara sinn vanagang og ekkert krassandi búið að gerast. Í gær var reyndar stór dagur fyrir íbúa Holmbladsgade 70C. Húsvörðurinn okkar, Hr. Møller, mætti á svæðið með konuna sína í eftirdragi. Hann kveikti sér í sígarettu og svo henti hann kústinum í hana. Við Arndís stukkum í ræktina og þegar við komum tilbaka var gangurinn **SHINE* **SHIIIINE*** *SHIIIIINE***. Frábært að "hann" hafi loksins drifið í að þrífa sígarettuöskuna, köngulóavefinn, drullugu skóförin og rykið á göngunum. Það hefur nefnilega ekki verið þrifið hérna síðan í júlí....en samt borgum við fyrir mánaðarleg þrif!!! Húrra fyrir konunni hans Møllers! :)

Það eru endalaus hópverkefni í arkitektaskólanum. Fyrsta árs nemum á deildinni minni var skipt í þrjá hópa og átti hver hópur að skrifa um eina borg á N-Spáni, þ.e. Bilbao, Vitoria-Gasteiz og San Sebastian. Við erum nefnilega að fara í vikuferð til Spánar í lok mars og er þetta liður í undirbúningi ferðarinnar. Ég er samt ennþá pínu efins hvort ég eigi að fara (ekki skylda að fara). Þetta kostar nefnilega frekar mikið og það er ekki hægt að segja að peningarnir vaxi á trjánum á Holmbladsgade. En ég ætla að sofa á þessu í nokkra daga....þarf reyndar að fara að drífa mig að taka ákvörðun því að verðið hækkar og hækkar.

Allt lausaklink er vel þegið,
Grétar Örn

P.S. Fyrir áhugasama þá er neðri myndin af Guggenheim listasafninu í Bilbao. Arktitektinn er Ameríkaninn Frank Gehry.


sunnudagur, 14. janúar 2007

Vettvangsferð til Nørrebro

Við erum heldur búin að vera dugleg um helgina. Vorum reyndar búin að ákveða að eyða helginni í afslöppun og leti, á föstudeginum leigðum við 3 DVD og lögðumst upp í sófa. Það entist þó ekki lengi þar sem að Aldís hringdi í okkur og bauð okkur heim til sín. Við rifum okkur á lappir og hentumst út í rokið og upp á Norrebro. Fínasta partý og gaman að hitta þau aftur, við fórum þó snemma heim. Grétar hafði aldrei verið á Nørrebro (ghetto Köben) og var gífurlega spenntur að sjá þetta hverfi og Ungdomshuset sem mikið er búið að vera í deiglunni hérna í DK. Það vildi nú ekki betur til en svo að við þurftum að ganga út Jagtvej (þar sem Ungdomshuset er) til að komast á Nørrebrogade...til að komast heim, svo við fengum djammið í Ungdomshusinu beint í æð....mjög sjabbí staður ef satt skal segja!

Við skelltum okkur svo í ræktina á laugardeginu, helv*ti dugleg í þetta skiptið þó ég segi sjálf frá. Ekki fannst okkur það nóg, heldur ákváðum við að fá okkur göngutúr niður í bæ til að ná í böggul sem að mamma hafi sent mér með vinkonu sinni. Fengum okkur einn Joe's djús og tókum síðan Metro heim. Kvöldið var þó tekið í rólegheitunum, kjúklingalasagna eldað og horfðum á tvær myndir.

Við ætluðum að halda okkur innandyra í dag vegna þvílíks roks og óveðurs, en fórum þó aftur upp á Norrebro til að hjálpa frænku minni að flytja. Það er því óhætt að segja að Grétar hafi fengið góðan skammt að Nørrebronx þessa helgina, hann er búinn að tala um að fara í vettvangsferð um hverfið í langan tíma og loksins fékk hann ósk sína uppfyllta!

Allt gengur vel hjá okkur, Grétar á fullu í hópverkefnum í skólanum (hans uppáhald), nóg að gera hjá mér í vinnunni. Er að fara til Birmingham 7. febrúar og kem eftur til DK að morgni 9. febrúar, VINNUFERÐ í einu orði sagt. Efast um að ég eigi eftir að sjá neitt annað en TOPSHOP í þessari ferð, fer með tveimur öðrum verslunarstjórum sem ég þekki ágætlega héðan. Eigum eflaust eftir að læra heilmikið, verðum send í workshop og fleira.

Þið megið gjarnan senda okkur smá snjó, við sendum ykkur rok í staðinn. :)

Æj ég sakna ykkar :)

Kær kveðja, Arndís

fimmtudagur, 11. janúar 2007

Rigning og rok!!!

Veðrið leikur ekki við Kaupmannahafnarbúa þessa dagana. Síðan við Arndís komum til Danmerkur er búið að vera rok og dembandi rigning upp á hvern einasta dag. Vanir menn segja að svona sé hið ekta danska vetrarveður....frááábært! Þeir sem þekkja mig vel vita að ég hata rok og rigningu. Þetta er versta samsetning sem til er!!! Ég velti oft fyrir mér afhverju við Arndís fluttum ekki suður á bóginn þar sem er sól og hiti allan ársins hring.....fyrst við vorum á annað borð að flytja frá Íslandi.

Hafið það sem allra best í fallega vetrarveðrinu heima. Ég ætla að skríða undir teppi á meðan ég safna í mig kjark fyrir komandi átök í kvöld. Ég á nefnilega að fara á körfbuboltaæfingu í Tårnby......það þýðir 30 mínútna hjólatúr í bandbrjáluðu dönsku vetrarveðri.

Vatnsgreiddur og sveittur eftir erfiðan hjólatúr,
Grétar Ørn

mánudagur, 8. janúar 2007

Lélegt hópverkefni og rennandi hor!

Ég held að Danir viti ekkert hvað jólafrí er........og hvað þá að maður þurfi smá tíma til að jafna sig eftir jólafrí. Þann 3. janúar var lagt fyrir hópverkefnið "Win-Win urbanizme" og var allri deildinni skipt í 15 hópa. Verkefnið gekk út á að velja ákveðinn stað í Kaupmannahöfn og gera hann betri fyrir íbúa. Hópurinn minn bjó til "Cykel Pit", þ.e. pitstop fyrir hjól. Við hönnuðum 10 fermetra skúr sem við staðsettum svo við hliðin á víðförnustu hjólastígum borgarinnar. Í skúrnum er hægt að....

- kaupa smáhluti fyrir hjól, s.s. ljós, batterí, bætur, olíu o.fl.
- pumpa í dekk
- gera við sprungið dekk, bilaðar bremsur...
- skjár með leiðbeiningum fyrir fólk sem ekki kann til verka
- leigja borgarhjól (bycykel) sem eru í hjólagrind utan á skúrnum
- skúrinn er opinn allan sólarhringinn

Þetta er í grófum dráttum verkefnið sem við kynntum í dag. Mér fannst hugmyndin ágæt EN þetta var bara svo hrikalega illa útfært af hópnum mínum. Skammaðist mín eiginlega á meðan kynningunni stóð! Þetta var svo ógeðslega ljótt hjá okkur!!! Ástæðan er sú að hópurinn minn nennti ekki að gera þetta verkefni vel af því að við fáum enga einkunn.

En já, eins og þið sjáið í fyrirsögninni þá er ég orðinn veikur. Ég er mjög slappur, með hnífsblöð í hálsinum og svo fossar úr nefinu. Ég píndi mig samt til að fara í skólann í morgun af því stelpurnar tvær í hópnum voru búnar að tilkynna að þær kæmu ekki. Eftir voru þá Kim og ég.....mér fannst ekki hægt að láta Kim standa einan og kynna þessa hörmung svo ég druslaðist upp í skóla. Um leið og við vorum búnir með kynninguna þá laumaðist ég út úr salnum, brunaði heim, beint undir sæng og núna ætla ég að fara að skoða augnlokin þangað til Dísa kemur heim.

Hafið það sem allra best,
Grétar

miðvikudagur, 3. janúar 2007

Komin aftur til Köben!

Jæja, þá eru jólin búin og komið nýtt ár. Blákaldur hversdagsleikinn blasti við okkur þegar við stigum út úr Iceland Express vélinni á Kastrup í gær. Ég var kominn með setusár á rassinum og Arndís var mjög pirruð eftir að hafa reynt að ná sambandi við mig allt flugið. Hún reyndi svo að telja mér trú um að ég væri heyrnardaufur en ég stóð fast á því að þetta væri alfarið henni að kenna....steplugreyið talar einfaldlega ekki lengur nógu skýra íslensku (eftir tæplega 5 mánaða dvöl í DK).

Núna hefst á ný hið daglega líf í København. Í morgun skriðum fram úr rúminu um kl. 6.30 og reyndum að hlaupa jólasteikina af okkur í Multifitness. Síðan brunuðum við á hjólunum okkar eftir Amagerbrogade og leiðir skildust á Christianshavn. Ég beygði til hægri og stefndi í átt að grasinu í Christaniu en Dísa brunaði yfir brúna og parkeraði svo gulu eldingunni í fínu hjólageymslunni fyrir utan Magasin.

Úff....ég er farinn að hlakka til næstu jóla! Arndís tilkynnti mér á Leifsstöð að næstu mánuði yrði bara á boðstólum grænmeti og vatn. Hún hefur haft stórar áhyggjur af sukkinu síðustu vikur svo núna munum við einungis eta spínat, sellerí, lauk, gúrku....ég veit ekki einu sinni hvað sumt af þessu drasli heitir!

Hollustan verður svo sannarlega í fyrirrúmi á Holmbladsgade næstu mánuði!

Grétar Gørn

mánudagur, 1. janúar 2007

2006: Annáll

Gleðilegt ár kæru heimasíðugestir! Hér fyrir neðan kemur stutt samantekt fyrir árið 2006.....atburðirnir eru í tímaröð. ;)
  • Arndís var í listfræði og Grétar í byggingaverkfræði í HÍ
  • Unglingaflokkur KR tapaði í bikarúrslitum á móti FSU
  • Grétar sendi hjemmeopgave” til arkitektaskólans í Köben
  • Byrjuðum að blogga í mars
  • DHL sendi “hjemmeopgave” til Árósa en EKKI til Köben
  • Arndís byrjaði að vinna í lok mars hjá Sjóvá og Grétar á teiknistofunni Batteríinu
  • Fluttum í 2 vikur í Fjallalind til að passa Dimmu (lítil tík)
  • Unglingaflokkur KR tapaði í undanúrslitum Íslandsmótsins á móti FSU (framlengdur leikur)
  • Flugum til Köben í lok maí til þess að Grétar gæti tekið inntökuprófið í arkitektaskólann
  • Fluttum í kjallarann á Smáragötu í byrjun júní
  • Köngulóaflóð í íbúðinni
  • Arndís seldi bílinn sinn, a.k.a. litla ljónið
  • Fluttum til Köben í byrjun ágúst
  • Roadtrip með fjölskyldu Arndísar til Árósa.....náðum í draslið okkar
  • Fjölskylda Grétars kom í stutta heimsókn. Fórum til Svíþjóðar og skoðuðum æskuslóðir hans
  • Björg bjó hjá okkur í viku
  • Grétar fór í “rustur” í eitthvað cowboy-þorp....svaka partý í 3 daga
  • Grétar var bitinn í kanalnum....málið er enn óupplýst. Auglýst eftir vitnum
  • Arndís var gerður verslunarstjóri í TOPSHOP í Magasin
  • Grétar byrjaði að spila körfubolta með BK Amager
  • Fórum með fullt af klinki (um 1200 ísl kr í 10 köllum) út í búð. Gerðum afgreiðslumanninn alveg trítilóðan
  • Fórum með ALLAN þvottinn okkar í møntvask. Því var lokað snemma svo við þurtftum að burðast með blautan þvott (60-80 kg) á bakinu í 10 mín til að finna næsta þvottahús. Kom svo í ljós að það var hægt að þvo ókeypis í húsinu okkar!!!
  • Grétar braut hjólalykilinn sinn og svo sprakk afturhjólið á sitthvoru reiðhjólinu (sama daginn)
  • Teitur og Doddi komu í helgarferð í október. Hvar er djaaaammeeeð?! ....og ekki má gleyma vatnsblöðrutryllitækinu sem Doddi keypti
  • Hildur, Hera og Jordi komu í heimsókn í byrjun nóvember
  • Grétar óður á dansgólfum Kaupmannahafnar
  • Davíð komu í vikuheimsókn í miðjum nóvember
  • Hraðflutningarfyrirtækið DPD að gera Grétar brjálaðan. Bið í mánuð eftir fæðurbótarefnum. Hann þurfti að senda 6 e-mail, hringja 10 símtöl og skrópa 3 daga í skólanum til að bíða eftir vörunum
  • Stolið frá Grétari 15.000 kr! Hugsanlega var settur “frontur” á hraðbankann
  • Grétar flaug af hjólinu sínu. Fékk sár sem leit út eins og kandíski fáninn
  • Allt brjálað í jólaösinni í Magasin. Tekið sjónvarpsviðtal við Arndísi sem var svo sýnt á RÚV.
  • Flugum heim til Íslands í 13 daga jólafrí 20. desember
Commentari ársins 2006 er Ásta Eir frænka!

P.S. Áramótaheitið okkar er að skrifa styttri færslur og með reglulegra millibili. Menn eins og Þórður Gunnar, a.k.a. D-Dog, voru ekki alltaf sáttir með hversu langar og ítarlegar sumar færslurnar voru.