sunnudagur, 25. febrúar 2007

Góð helgi senn á enda....

Fredagsbar
Á föstudaginn héldu fyrsta árs nemarnir á Afdeling 10 (deildin mín) bjórkvöld í kantínunni til að safna fyrir skólaferðalaginu til Spánar. Þemað var ,,After Skii” og var 1/3 af matsalnum afmarkaður og skreyttur á viðeigandi hátt. Úti var allt á kafi í snjó (eins og pantað) og ég fór ásamt fjórum öðrum með vagn út í Nettó í brjáluðu roki og nístandi kulda að sækja búúúús. Þar hlóðum við á vagninn 60 kössum af bjór (1440 bjórflöskur eða 475 lítrum af bjór), 10 flöskum af vodka og 5 kössum af blandi (alls konar gosi). Eftir mikla baráttu við Kára þá tókst okkur að ýta vagninum upp í skóla (1 km).

Bjórkvöldið gekk vonum framar og það var troðfullt allt kvöldið. Ég stóð á barnum frá kl. 17-23 og ég er alvarlega að hugsa um að leggja blýantinn á hilluna og gerast barþjónn. Nei, segi bara svona. Okkur tókst að selja alla kassana nema tvo! Veit ekki alveg hversu mikill gróðinn var en ég fæ að vita það á morgun. Arndís var á bjórkvöldinu milli kl. 16 og 17 þegar fólk var að koma og ég smellti nokkrum myndum en svo þurfti hún að taka myndavélina með í matarboð af því að hún vildi ENDILEGA taka myndir af vinnufélögunum sínum. Veiiiiii....hún tók 3 myndir! Geri aðrir betur. Ég verð því að fá myndir hjá bekkjarfélögunum sem ég set svo inn á myndasíðuna. Bíðið spennt!!!

Matarboð
Ég fór sem sagt í matarboð til Dans (verslunarstjóra í Topshop á Strikinu) og kærasta hans (Morten) á föstudagskvöldið. Ásamt mér voru tvær aðrar stelpur, þetta var mjög notalegt. Þeir búa í mjög flottri íbúð á Nørrebrogade og eftir heimboðið er ég komin með allt aðra skoðun á íbúðum Nørrebronx hverfis. Þær íbúðir sem ég hef komið í eru mjög gammel og fallegar. Fengum Cosmo í fordrykk við undirleik Annie Lennox, í aðalrétt fengum við svo nautasteik, hvítlaukssteiktar kartöfluskífur og sveppi og svo salat. Fæ vatn í munninn við tilhugsunina!!! Í eftirrétt var svo brownies a la Morten (hef ekki smakkað svona góðar brownies), kaffi og Baileys. Við spjölluðum síðan fram til klukkan hálf tvö en þá fannst mér tími til kominn að fara heim eftir gott kvöld. (Myndin er af Louise og Önju...ein af 3 myndum sem var tekin þetta kvöld)

Fyrsta bíóferðin okkar
Loksins, loksins skelltum við okkur í bíó. Við höfum ekki farið í bíó síðan í júlí! Það er frekar dýrt að fara í bíó í Danmörku svo við höfum því meira stundað vídeóleiguna hingað til. En myndin sem varð fyrir valinu var Apocalypto sem Mel Gibson leikstýrir. Myndin var ótrúlega flott og það var ákaflega gaman að sjá þennan fallega frumskóg EN það var samt eitthvað sem vantaði. Þetta var eiginlega bara eltingarleikur fram og til baka um skóginn en við höfðum búist við smá meiri sögu. Myndin var samt mjög spennandi og Arndís kreisti höndina mína allan tímann. Þetta er samt mynd sem maður verður að sjá á stórum skjá.....alltof fallegt umhverfi fyrir lítinn sjónvarpsskjá! Holmbladsgade gefur myndinni 3 og ½ stjörnu.

Körfubolti
Í dag kepptum við á móti SISU 2 sem voru efstir í deildinni okkar. Þeir voru með mjög hávaxið lið og við með mjög lágvaxið lið. En þeir voru seinir upp völlinn svo við keyrðum stíft á þá. Staðan í hálfleik var 34-38 fyrir okkur (BK Amager). Í 3. leikhluta tóku þeir völdin og skoruðu 14 stig í röð. Leikurinn endaði með sigri þeirra 78-64. Frekar svekkjandi en við vorum bara ekki nógu sterkir í síðari hálfleik. Ég skoraði 5 stig, 9 fráköst, stal 5 boltum og gaf 4 stoðsendingar. Við gerum betur næstu helgi....smá fréttir fyrir körfboltaáhugamenn! ;)

Södd eftir ljúffengan grjónagraut,
Arndís og Grétar

Á fóninum: Chromeo – Needy Girl

miðvikudagur, 21. febrúar 2007

Vor í lofti?!

Tekið af mbl.is: Bylur í Danmörku!

Bylur hefur gengið yfir Danmörku í nótt og morgun og er mikil hálka víða á vegum í dag. Hefur þetta haft áhrif á umferð bíla og lesta í morgun og að sögn danskra fjölmiðla hefur danska björgunarsveitin Falck haft nóg að gera. Nú í morgunsárið var snjókoman mest á austurhluta Jótlands en spáð er snjókomu á Sjálandi þegar líður á daginn. Einnig er spáð snjókomu á suðurhluta Svíþjóðar.

Mér finnst alveg ótrúlegt að "snjóbylurinn" í Danmörku skuli hafa verið á fréttavef Morgunblaðsins. Þegar ég hjólaði í skólann í morgun þá var smá púðursnjór á jörðinni sem bráðnaði um leið og ég þeysti yfir hann á græna drekanum. Þegar ég var að læsa hjólinu mínu kom troðfullur strætó af fólki og það kom gufustrókur úr honum þegar dyrnar opnuðust. Allar listaspírurnar þustu út og tékkuðu hvort hárgreiðslan væri ekki á sínum stað....alveg yndislegt pakk! Það snjóaði síðan allan daginn og Danir töluðu ekki um annað en hvernig þeir ættu að komast heim í lok dagsins. Sumir höfðu miklar áhyggjur af því að veðurfræðingurinn sagði í gær (á TV2) að síðdegis myndi ganga yfir rosalegur snjóbylur. Veit að ein stelpa í bekknum mínum treysti sér ekki til að taka strætó í skólann svo hún ákvað bara að vera heima.........og ég er ekki að ýkja núna.


Á leiðinni heim úr skólanum (um kl. 16) var ansi hvasst og litlu snjórkornin stungust í augun þegar ég leit upp við og við til að sjá hvort ég væri ekki alveg örugglega að stefna á Holmbladsgade. Eins og þið sjáið á myndinni (sem ég tók á leiðinni heim) þá er allt á kafi í snjó og blindbylur úti! :) Hjólatrafíkin var töluvert minni í dag og mér finnst það skammarlegt! Það var greinilegt að einungis þeir allra hörðustu létu sig hafa að hjóla til vinnu sinnar í morgun þrátt fyrir að von væri á "snjóbylnum mikla".

Þó það verði 30 cm snjór i fyrramálið þá ætla ég ekki að svíkja lit og taka strætó með sveittu listaspírudruslunum. Ég kemst á leiðarenda að lokum þó ég þurfi að bera hjólið á öxlunum. Það væri samt alveg frábært ef fjölskyldan mín nennti að senda mér gömlu skíðagleraugun mín. Þá get ég allavega hjólað beinn í baki og stýrt græna drekanum.

Inni með rjúkandi kaffibolla að bíða eftir snjóbylnum,
Ørnen

Á fóninum: Nina Simone - My Baby Just Cares For Me

mánudagur, 19. febrúar 2007

Bow wow wow Bobby Jay style!!!

Fékk þennan sendan frá móður minni og varð að deila þessu með ykkur!
Þessi gutti á framtíðina fyrir sér! Hann er með taktana, röddina, fötin og allan pakkann. Þeir gerast ekki flottari en þetta get ég sagt ykkur!!! :)

Peace out!
Arndís

Á fóninum: Bobby Jay - Bow wow wow

miðvikudagur, 14. febrúar 2007

Valentínó baby!!!

Sá stórmerkilegi dagur, Valentínusardagur, var í dag og að sjálfsögðu héldum við upp á hann með pomp og prakt. Þó að við séum hvorug mikið fyrir þessa amerísku klisju nýtum við hvert tækifæri til að gera okkur dagamun og fá okkur góðan mat. Ég byrjaði á því að bjóða Grétari í hádegismat í kantínunni í skólanum hans, samloka á pappadisk og Matilde, þaðan lá leið mín niður í bæ og gerði dauðaleit að lítilli gjöf handa Grétari. Þegar þeirri leit var lokið fór ég heim og vann dálítið þangað til að minn betri helmingur kláraði sinn skóladag.

Um fimmleytið kom hann móðandi og másandi inn um hurðina og sagði: "Ég er heldur betur búinn að klúðra þessu!!!". Þessi elska var búinn að ákveða að bjóða mér út að borða um kvöldið og á kaffihús og ætlaði að kaupa blóm á leiðinni heim, en þegar í blómabúðina var komið uppgötvaði hann að hann gleymdi veskinu sínu í skápnum uppi í skóla! Hann rauk því út aftur, brunaði upp í skóla á fáknum og kom þremur korterum síðar með blóm og Toblerone í annarri.

Við skelltum okkur síðan í betri föt og fórum á okkar uppáhalds stað þessa stundina, Riz Raz, hreint út sagt dásamlegur Miðjarðarhafs-grænmetis-staður. Eftir að hafa borðar fyrir peninginn...og gott betur, fórum við á Café Norden og ætluðum loksins að láta verða af því að fá okkur jarðaberjatertuna frægu...nei þá var hún bara búin! Við dóum þó ekki ráðalaus, pöntuðum okkur volga eplaköku, súkkulaðitertu og tvo kaffi latte. Mett og ánægð héldum við svo heim á leið með bros á vör og þrjá banana í hendinni sem Grétar vildi endilega kaupa, hann getur nefnilega ekki byrjað daginn almennilega ef hann fær sér ekki Holmbladsgadedrykkinn fræga eftir ræktina. Þeir sem hafa smakkað hann....skilja það kannski.

Yndislegt kvöld er nú senn á enda. Létum nokkrar myndir frá kvöldinu inn á myndasíðuna.

Góða nótt,
Arndís

Á fóninum: Norah Jones - Don't know why

P.S. Við tókum þá ákvörðun að læsa myndasíðunni okkar. Viljum ekki að hún sé opin fyrir öllum umheiminum! En til gamans má geta að það koma MIKIÐ af virkilega skemmtilegum myndum á næstu dögum (nýjum og gömlum). Lykilorðið er millinafnið mitt....hmmm???Allt lágstafir! :)

laugardagur, 10. febrúar 2007

Smá körfuboltafréttir!

Já, það er ekki búið að vera svo mikið að blogga um upp á síðkastið svo ég hef ákveðið að koma með smá körfuboltafréttir fyrir gömlu félagana mína í KR og aðra áhugasama. Í morgun reif ég mig upp á lappir kl. 7.30 og við keyrðum til Gladsaxe sem er lítið hverfi í útjaðri Kaupmannahafnar. Útlitið var fremur svart af því að við vorum aðeins 7 leikmenn (aðalskorarinn okkar var rotaður undir sæng og með slökkt á símanum sínum). Þar af var einn ennþá hálffullur eftir erfiða nótt og svo vorum við með tvo stráka á bekknum (báðir fæddir ´89) sem hafa lítið sem ekkert spilað með okkur í vetur. Gæti það verið betra?!

Þetta var hörkuleikur frá fyrstu mínútu og liðin skiptust á að hafa forystu. Staðan í hálfleik var 41-38 fyrir Gladsaxe. Í seinni hálfleik komum við trylltir inn á völlinn og 3. leikhlutinn endaði 53-59 fyrir okkur. Í síðasta leikhlutanum náðum við 10 stiga forystu en eftir nokkur slæm mistök hjá stóra manninum okkar (sem lyktaði eins og brennivínsflaska) þá náðu þeir að minnka muninn í 2 stig, þ.e. í 73-75, og aðeins 12 sekúndur eftir. Ég fékk boltann og reyndi að drippla upp völlinn. Þrír leikmenn Gladsaxe réðust á mig og ég var bókstaflega straujaður niður. Ég fór því á vítalínuna og áhorfendur Gladsaxe létu sko heyra í sér. En þar sem íslenskir víkingar elska svona pressu þá smellti ég báðum vítunum niður. Aðeins 5 sekúndur voru eftir af leiknum og Gladsaxe brunuðu upp völlinn. Endaði með að leikstjórnandi þeirra tók lélegt skot rétt fyrir innan miðju og við náðum frákastinu þegar flautan gall. Unnum leikinn 73-77!!! Þetta var án efa minn besti leikur í vetur, var með 21 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar.

Liðinu mínu, BK Amager, hefur gengið alveg hrikalega eftir áramót. Erum búnir að spila 5 leiki og aðeins vinna tvo af þeim. Við vorum búnir að vera í 1. og 2. sæti til skiptis (fyrir áramót) en eftir lélegan janúarmánuð þá erum við dottnir niður í 4. sæti. En loksins náðum við að sigra svo ég vona að það verði ekki fleiri tapleikir í vetur. Hafið það sem allra best um helgina. Átti að skila kærri kveðju frá Dísu skvísu en hún er að vinna í dag.....ekki alveg sátt, eins og sést á myndinni, af því að það er alveg yndislegt vetrarveður úti!

Venlig hilsen,
Gretar Ørn

Á fóninum: MC Solaar - La Belle et le Bad Boy

mánudagur, 5. febrúar 2007

Hópverkefnið er loksins búið!

Síðustu tvær vikur höfum við á fyrsta ári (á deild 10) verið að vinna hópverkefni sem er liður í undirbúningi fyrir skólaferðalagið til N-Spánar í lok mars. Verkefnið heitir Arkitekturanalyse og er skipt í tvo hluta:

(1) Byanalyse, þ.e. skrifa um eina borg á N-Spáni,

(2) Byggningsanalyse, þ.e. rannsaka ákveðna byggingu með tilliti til dagsbirtu/sólarljóss.

Hópurinn minn fékk borgina Vitoria-Gasteiz og svo bygginguna Palacio de Congresos y Auditorio de Navarra sem er oftast kölluð Baluarte. Byggingin er risastór og er staðsett í borginni Pamplona. Arkitektinn er Francisco José Mangado. Í byggingunni eru ýmsir salir fyrir t.d. balletsýningar, sinfóníur, fyrirlestra, ráðstefnur o.fl. Áhugasamir geta ýtt hér til að skoða heimasíðu byggingarinnar. Mjög flottar 3D-hreyfimyndir o.fl.

Tvær stelpur í hópnum sáu um að skrifa texta um bygginguna á meðan Svíinn Navid og ég byggðum módelið. Þegar módelið var tilbúið fórum við svo í ,,lysstudio” þar sem við gátum notað gervisól. Þar stilltum við á rétta breiddargráðu (svo að sólin myndi líkjast sólinni á Spáni) og svo tókum við myndir á mism. tímum dags og á mism. árstíðum.

Með öllum þessum myndum gátum við svo gert dagslysanalys sem við kynntum fyrir bekknum í dag. Okkur gekk bara glimrandi vel! Módelið vakti mikla athygli......og að sjálfsögðu öfund nemendanna. Neiiihh segi svona. Við Navid nostruðum samt kannski einum og mikið við módelið á meðan flestir hópar reyndu bara að rumpa sínu af. Klikkið hér til að sjá fleiri myndir af módelinu.

Farinn á Riz Raz með Dísu,
Grétar Ørn