föstudagur, 30. mars 2007

Bloggið í páskafrí!

Bloggið fer núna í stutt páskafrí! Hafið það sem allra allra best og verið dugleg að borða páskaegg!

Arndís & Grétar

sunnudagur, 25. mars 2007

Skólaferðalagið til Spánar!

Kom heim í gærkvöldi eftir vikulanga dvöl á N-Spáni. Þetta var mjög skemmtileg ferð og ég upplifði margt undarlegt á þessum stutta tíma. Ég hafði aldrei áður komið til norðurhluta Spánar svo ég vissi ekki alveg hvernig viðraði þarna í mars.....tók auðvitað ekki mark á veðurspánni á veraldarvefnum. Þar af leiðandi pakkaði ég bara niður ermalausum skyrtum, stuttbuxum, Speedo-skýlunni góðu, sólbrillunum og auðvitað Tan Maximizer! Á föstudagskvöldinu (16. mars) flaug ég með easyJet rellu til London þar sem hópurinn átti að gista yfir eina nótt. Eftir yndislegan nætursvefn á hörðu og ísköldu marmaragólfi héldum við ferðinni áfram til Bilbao!

Bilbao (inni í landi)
Gistum á frábæru hosteli í versta hluta borgarinnar (að sögn innfæddra). Þegar myrkrið skall á fylltust göturnar í kring af subbulegum dópsölum og léttklæddum kvenmönnum. Við pössuðum okkur á að halda hópinn og eftir mikið streð og mörg gylliboð þá komumst við loksins út úr hverfinu og niður í miðbæ. Miðbær Bilbao var alveg yndislegur! Ég varð alveg heillaður af þessari borg. Hún liggur í gróðursælum dal, á sem skiptir borginni í tvennt, allt út í litlum og huggulegum götum, fullt af almenningsgörðum, fallegar byggingar og alveg einstaklega snyrtileg borg. Borgin er þekktust fyrir Guggenheim listasafnið sem ég hef nefnt nokkrum sinnum áður á þess bloggi. Þetta var rosalega flippuð bygging og ég á mjög erfitt með að skilja hana....en einstök upplifun að fá tækifæri til að skoða hana. Síðan má einnig nefna að samgöngukerfi borgarinnar er alveg til fyrirmyndar. Frábært metrókerfi og svo voru litlir, grænir og hljóðlátir sporvagnar sem keyrðu um miðbæinn. Fyrir utan staðsetningu hostelsins þá líkaði hópnum vel í Bilbao.

Vitoria-Gasteiz (uppi á hálendi)
Eftir tveggja klukkustunda rúturferð komum við til Vitoria á sunnudagskvöldinu. Yfir borginni lá dularfull þoka og á meðan við vorum að leita að farfuglaheimilinu byrjaði að snjóa. 47 arkitektanemar, 3 kennarar og 1 spænskur rútubílstjóri göptu af undrun. Snjókoma.....á Spáni?! Þetta hafði Hr. Guðmundsson alls ekki búist við! Eftir mikla leit fundum við hostelið eða réttara sagt herbúðirnar eins og það var gjarnan kallað. Við strákarnir á 1. ári sváfum allir í kojum í einu herbergi og ég get sagt ykkur að það var ekki mikill svefnfriður á meðan við dvöldum í Vitoria. Ef einhver fór upp í koju að sofa þá var ýmist hellt vatni yfir hann, krotað á hann eða einstaklingurinn vafinn inn í klósettpappír. Arkitektanemar eru alveg gífurlega þroskaðir..... En það snjóaði og rigndi til skiptis svo það var undantekning ef maður komst þurr á milli áfangastaða. Við skoðuðum margar byggingar í borginni en það eftirminnilegasta var án efa kirkjan sem við skoðuðum. Þegar við komum inn í bygginguna bað sóknarpresturinn okkur um að setjast. Síðan kveikti gamli kallinn á skjávarpa og hélt svo stuttan fyrirlestur um Jesú....á spænsku. Held að enginn hafi skilið greyið! Snjór, tapas, slydda, salsadans, tapas, tapas, tapas.....held að íbúar Vitoriu borði ekkert annað en tapas. Mjög þreytandi til lengdar!

San Sebastian (strandbær)
Á leiðinni til San Sebastian keyrðum við gegnum borgina Pamplona þar sem við skoðuðum stóra tónlistar- og ráðstefnuhúsið Baluarte (sem ég byggði módel af í janúar) og tvær háskólabyggingar. Eftir glæfralega akstur rútubílstjórans á litlum og snæviþökktum fjallavegum komumst við heil til strandbæjarins San Sebastian. Þar var enginn snjór en í staðinn fengum við ofsaveður. Hópnum var skipt á þrjú hostel og við á 1. ári fengum lítið kakkalakkahostel sem var rekið af eldri hjónum. Ég lenti í herbergi með Svíanum Navid og offícernum Mr. Kim Illum. Við þrír drifum okkur beint niður á höfn til þess að sjá ölduganginn. Þetta voru alveg risastórar öldur sem svifu 5 metra fyrir ofan bakkann áður en þær skullu á heimska túrista sem voru að fíflast þarna (....hmmm við þrír og nokkrir aðrir). Við komum allir rennandi blautir til baka á hostelið en þetta var alveg vel þess virði! Mjög huggulegur bær og ég er viss um að það er alveg yndislegt að vera þarna í 30°C hita. Við skoðuðum m.a. Kursaal (margverðlaunað tónlistarhús), arkitektaskóla borgarinnar, útilistaverk Eduardo Chillida o.fl.

Ferðin var mjög skemmtileg og ég kynntist bekkjarfélögum mínum miklu betur. Við vorum einstaklega óheppin með veður og Spánverjar sögðu að svona skrítið veður hefði ekki verið í háa herrans tíð. Það snjóaði í mesta lagi einu sinni á ári á þessu svæði.......og við fengum fjóra daga! Það var mikið talað um veðrið í spænsku fréttunum og sýndar myndir af bílum sem sátu fastir í sköflum. Ég gat alveg sætt mig við veðrið en ég varð fyrir hrikalegum vonbrigðum með matinn á N-Spáni. Í fyrsta lagi virðast þeir einungis borða TAPAS....síðan eru nánast engir veitingastaðir þarna. Bara fullt af litlum rottuholum sem selja San Miguel og tapas. Ég kom því til baka kaldur, hrakinn og vannærður.....með ónotaða sundskýlu. En veðrið leikur við Kaupmannahafnarbúa þessa dagana og við Arndís fórum í 4 klst göngutúr í dag í 16°C hita og glampandi sólskini.

Myndavélin mín bilaði daginn áður en ég flaug til Spánar. Ég lét því 46 arkitektanema taka fyrir mig myndir og í næstu viku fæ ég myndirnar. Ætla að velja bestu myndirnar og henda þeim inn á myndasíðuna við fyrsta tækifæri. Læt ykkur vita þegar þær koma. Hafið það gott þangað til! Ætla að fá mér vöfflur......ég skipaði Arndísi að gefa mér eitthvað almennilegt í kvöldmat!

Bestu kveðjur,
Grétar

Á fóninum: Justice - D.A.N.C.E

þriðjudagur, 20. mars 2007

1. árs!!!

Það á afmæl'í dag, það á afmæl'í dag, það á afmæli elsku bloggiiiiið, það á afmæl'í dag!!!

Það er aldeilis að tíminn flýgur! Bloggið orðið eins árs og heilmikið búið að gerast síðan þá. :) Vona að tíminn haldi ekki áfram að fljúga svona framhjá manni...ef svo er verð ég orðin sjötug áður en ég veit af!

Annars er allt gott að frétta af mér, ég er ein í kotinu þessa daga...finnst nú alveg nóg komið að því og Grétar mætti fara að drífa sig heim! Það er þó alltaf nóg að gera, fæ enga frídaga í vinnunni í þessari viku sem er jákvætt. Á fimmtudagsmorgun mæti ég kl. 7:00 til að fara að mála, ég og önnur stelpa ætlum að gera þetta alveg einar og eigum að vera búnar að mála
stórann vegg fyrir opnunartíma (þ.e.a.s. kl. 10:00), sjáum til hvernig það fer.

Hef heyrt aðeins í Grétari, í morgun var snjór og leiðinlegt veður
svo hann hefur eflaust ekki haft mikil þörf fyrir speedo-sundskýlu og kókosolíu! Í dag fóru þau svo á nýtt hostel þar sem hann sagðist hafa orðið var við kakkalakka...get ekki sagt að ég öfundi hann mikið.
Hann hefur það þó bara gott, skoða byggingar og söfn á daginn og svo er það pöbbarölt og bjórdrykkja á kvöldin, eintóm gleði! :)


En svona til að svekkja ykkur heima á Íslandi í snjókomunni og Grétar á Spáni í rigningu þá var hér í dag heiðskýr himinn, glampandi sól og logn! :) Fékk því miður ekki að njóta þess, en ég gat skotist upp á þak í hádegishléinu mínu til að sóla mig aðeins.

Á sunnudaginn (25. mars) breytist svo tíminn hér yfir á sumartíma svo við verðum þá tveimur tímum
Á UNDAN! Spurning hvort að hitabylgjan komi á sama tíma...???

Þangað til næst, hafið það gott! :)

Kveðja,
Arndís

föstudagur, 16. mars 2007

Kæra Arndís og heimasíðugestir.

Ég er ennþá á lífi! ALLA þessa viku er ég búinn að vera uppi í skóla að vinna verkefni sem ég skilaði svo í dag. Ég er varla búinn að gera annað en að skera og líma pappa undanfarna daga. Þreytan er hægt og bítandi að hellast yfir mig núna af því að ég er einungis búinn að sofa 3 klst síðan á miðvikudaginn. Ótrúlega ljúft að vera loksins búinn með þetta módel og svo fékk ég mjög góða “krítík” fyrir verkefnið sem er auðvitað ennþá betra.

Verkefnið hét “Et tårn der skal bestiges” og í stuttu máli sagt leysti ég það svona:

Koncept
Klifurturninn var hannaður m.t.t. þess að þrír klifrarar gætu notað hann á sama tíma. Ég hannaði þrjá klifurveggi sem eru allir ólíkir að stærð og lögun. Veggirnir eru gerðir úr svörtum og massívum steypu skífum og innan í þeim er svört stálgrind. Þegar horft er á turninn er eins og steypan hafi molnað af og stálgrindin komið í ljós á ýmsum stöðum. Grindina geta svo klifrarar notað til þess að hífa sig alla leið upp á topp.

Form
Turninn er 10 metra hár og er gerður úr fjórum misstórum einingum. Þessar einingar mynda 3 klifurveggi og er þeim raðað í hálfhring. Á milli þeirra myndast miðja þar sem eru tröppur og voru þær hannaðar með tilliti til mynstursins í stálgrindinni. Þrepin eru í sömu línu og stálgrindin svo þegar maður stendur hinum megin við vegginn er eins og fólkið í tröppunum svífi (hafði því miður ekki tíma til að klára að byggja tröppurnar).

Hreyfing
Klifurturninn er gerður fyrir klifrara á öllum aldri. Hægt að velja um þrjá mismunandi klifurveggi til að komast upp turninn og á hverjum klifurvegg er svo hægt að velja um ólíkar og miserfiðar leiðir til að komast upp á toppinn. Þegar á toppinn er komið er hægt að ganga niður tröppur. Tröppurnar eru fyrir klifrara til að komast niður sem og fólk sem vill fara upp í turninn til að njóta útsýnisins án þess að þurfa að klifra hann.

Ég kláraði módelið seint í gærkvöldi svo ég náði ekki að taka myndir af því úti í sólarljósinu. Lampinn á borðinu varð því látinn duga. Ætla að taka betri myndir þegar ég kem heim úr skólaferðalaginu til Spánar (flýg kl. 21.30 í kvöld). Held að ég geti fengið miklu betri og flottari myndir. Þið verðið því að láta þessar duga. Læt þetta vera nóg í bili. Veit bara að sumir voru spenntir að heyra og sjá smá um verkefnið.

Farinn að pakka niður Speedo skýlunni og kókosolíunni,
Grétar Örn

Á fóninum: Muse - Starlight

þriðjudagur, 6. mars 2007

Hva....eru einhver læti hérna í Köben?!

Það er heldur betur búið að vera uppþot í borginni síðustu daga en við höfum lítið sem ekkert tekið eftir þessum látum. Eins og þið flest eflaust vitið þá snýst þetta um hið sögufræga "Ungdomshuset" á Jagtvej í Nørrebronx. Þetta VAR einhver sorgleg félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ríkið keypti til niðurifs og ætlar að byggja nýtt hús í staðinn. Í staðinn fá þau nýtt hús fyrir "starfsemina" sína og var því í raun ekkert til að rífast um. Við erum mjög fegin að losna við þetta ógeðslega hús sem sverti götumyndina.....og loksins er hægt að ganga Jagtvej án þess að fara í ammoníak vímu. Ekki þurr blettur um helgar í kringum og inni í húsinu....migið út um allt! Þetta er alls ekkert slæmt fólk sem stundar þennan stað. Þau hafa bara fengið slæmt orðspor á sig eftir mótmælin í desember og svo í síðustu viku. Danska ríkið þurfti að borga 12 milljónir DKK (142 milljónir ISK) fyrir öll skemmdarverk sem að mótmælendur ollu á götum og byggingum...sem að skattgreiðendur borga.

Lögreglan, sérsveitin og þyrlufloti Dana er þó ennþá í viðbragðsstöðu ef óeirðirnar skyldu blossa aftur upp. SMS-skilaboð ganga núna manna á milli þar sem verið er að hvetja fólk til frekari mótmæla. Þegar ég (Grétar) var að hjóla heim í sakleysi mínu um fimmleytið í dag voru 6 stórir sérsveitarbílar með blikkandi ljós búnir að loka af öllum helstu götum í kringum Christaníu og 2 þyrlur sveimuðu yfir svæðinu. Það var samt skemmtileg upplifun að fá lögreglufylgd nánast alla leið að Holmbladsgade....mér leið eins og konungi í 5 mínútur.

Annars er mest lítið að frétta...brjálað að gera hjá okkur báðum. Arndís er á fullu að ganga frá umsóknum fyrir skóla næsta haust og Grétar er einhvers staðar í háloftunum að hanna turn. Síðan er Bingó Bjössinn að fara til Spánar 16. mars með deildinni sinni....hann kallar þetta skólaferðalag en Arndís er nokkuð viss um að söfnin og byggingarnar verði aukaatriði í þessari ferð!!!

Þangað til næst, hafið það gott!
Arndís og Grétar

Á fóninum: Eskobar - Someone New