sunnudagur, 29. apríl 2007

The Zoooooo!!!

Já, það er ekki mikið að frétta af okkur....það sést kannski best á bloggleysinu. Bara gamla góða rútínan á hverjum degi. Arndís er búin að vera á milljón í vinnunni í 35°C hita (loftræstingin er biluð) og hefur lítið sem ekkert frí fengið. Þegar hún á að vera í fríi þá er hún alltaf kölluð í vinnuna af því að verslunarstjórinn vill sífellt fá hjálp við að stílisera búðina. Ég er hins vegar bara að hjakka í sama farinu í þessu blessaða verkefni. Gengur voðalega illa með það í augnablikinu..... Heilinn minn vill fara að komast í frí....ekki auðvelt að vera kreatívur allan ársins hring. En ég ætla rétt að vona að hugmyndin fari að komast á blað á næstu dögum því annars verður maí eitt allsherjar svitabað!

Í gær átti Arndís frí og ég ákvað því að gleyma verkefninu í nokkra klukkutíma og fara út með henni í góða veðrið. Við vorum búin að tala um í marga mánuði að það væri gaman að fara í dýragarðinn og heilsa aðeins upp á litlu dýrin í búrunum. Þetta var bara hin fínasta ferð og mér tókst meira að segja að plata Arndísi til að kaupa risarisastóran Tigervaaaaffel ís.......þ.e. 4 ískúlur, soft ice, jarðaberja guf og sulta......mmmmmmmmm! Um leið og við vorum sest niður og byrjuð að gæða okkur á ísnum þá byrjaði að rigna. Alveg týpískt....ekki búið að rigna í 2 vikur! Við ákváðum því að það væri kominn tími til að fara heim þótt við værum ekki búin að ná að heilsa upp á ljónin og górillurnar. Að sjálfsögðu var nýja myndavélin með í för og þið getið séð afraksturinn á myndasíðunni. Lykilorðið er millinafn Arndísar með lágstöfum.

Kv. Grétar

Á fóninum: Air - Once Upon A Time

sunnudagur, 22. apríl 2007

Stutt helgi senn á enda!

Á föstudaginn var Arndís að vinna til kl. 20.00 og svo brunaði hún beint upp á Nørrebronx í afmæli til Aldísar vinkonu okkar. Ég þurfti því miður að vinna í verkefninu mínu svo ég komst ekki með. Við erum búin að vera á tölvukúrsi alla síðustu viku (og verðum líka í næstu viku) svo kvöldin, næturnar og helgarnar fara í að vinna verkefnið....það voru allavega fyrirmælin frá kennurunum. Arndís átti fína kvöldstund með stelpunum og rétt eftir miðnætti brunaði hún inn Holmbladsgade.

Um kl. 7.30 í gærmorgun baulaði nýi síminn hennar Arndísar....tími til að skríða fram úr rúminu. Arndís átti að opna Top Shop kl. 8.30 svo það var enginn tími til að snooze-a. Ég reif mig líka á lappir og byrjaði að rembast við að vera hugmyndaríkur.....ekki auðvelt að fá hugmyndir svona snemma á laugardagsmorgni. Allt brjálað að gera hjá Arndísi og það var röð út að dyrum til að komast að búðarkassanum ALLAN daginn! Mjög góð sala hjá Dísu og félögum enda er allur bærinn fullur af túristum með troðfull veski af peningum. Um kvöldið vorum við Arndís bæði þreytt en við ákváðum samt að drusla okkur í afmælisboð hjá stelpu sem er með mér í bekk. Eins og Svíum einum er lagið þá fékk ég boðskort 21. mars.....heilum mánuði áður. Það voru því margir búnir að gleyma þessu blessaða afmæli enda sást það alveg á mætingunni. Þemað í afmælinu var "Try a drink" og áttu allir að koma með flösku af sterku víni (að eigin vali), viðeigandi bland og uppskrift að drykk. Það voru því um 20 mismunandi drykkir í boði og fullt af veitingum. Um tvöleytið vorum við Arndís farin að geispa svo við gengum heim í fallegu veðri.

Núna er klukkan að nálgast eitt (á sunnudegi) og við liggjum ennþá í rúminu.....hrikalega notalegt! Arndís er að lesa bók og ég er að.....blogga. Ætlum að taka því rólega í dag og ég er búinn að lofa að hugsa ekki um verkefnið fyrr en í kvöld. Sjáum til hvernig það fer. En næst á dagskrá er labbitúr í góða veðrinu og svo ætlum við að búa til pönnukökur á nýju pönnukökupönnunni sem við fengum senda frá foreldrum Arndísar. Ég hlakka mjög mikið til! Hafið það gott í dag! Ég ætla að hætta að pirra Dísu með þessu glamri í lyklaborðinu.

Bestu kveðjur,
Grétar Örn

Á fóninum: hrikalega falskur túbuleikur hjá stráknum í næstu íbúð


þriðjudagur, 17. apríl 2007

Íslandsmeistarar 2007!!!

Ég vil bara óska gömlu félögunum mínum í meistaraflokki KR og öllum KRingum til hamingju med Íslandsmeistaratitilinn! Their unnu í gær Njardvík 83-81 eftir framlengdan leik. Ég fylgdist spenntur med leiknum á heimasídu KR (bein textalýsing) og svo inn á milli fékk ég símtöl frá foreldrum mínum sem voru uppi í stúku. Hátt í 1500 manns troðfylltu KR-heimilid og ég get ekki neitað thví ad thað var svakalega erfitt ad sitja heima og fylgjast med leiknum á netinu. Hefði helst viljað vera í leikmannahópnum......en ég hefði líka alveg látid nægja að fá að vera uppi í stúku med öllum stuðningsmönnunum! En ég óska enn og aftur öllum KRingum til hamingju! Bikarinn er kominn aftur í Vesturbæinn eftir tæpa 7 ára fjarveru!

Áfram KR!!!
Grétar

laugardagur, 14. apríl 2007

Sumarið er komið!!!

Já sumarið er sko komið í Kaupmannahöfn, undanfarna daga hefur verið á 15-20 stiga hiti, heiðskýrt, sól og logn....gerist ekki betra veður í apríl. Þegar veðrið er svona gott þá verður maður svo framtakssamur og léttur í lund að maður hefur orku í nánast allt! (Doddi settu þig í stellingar, þessi færsla er löng).

Fimmtudagur, 12. apríl
Vöknuðum eldsnemma til að fara í ræktina, þýðir ekkkert að safna á sig spiki! Frídagur hjá mér í vinnunni og Grétar ætlaði að fara til Roskilde til að rannsaka betur baðsvæðið sem hann er að vinna með í skólanum. Ég dreif mig með honum (þar sem hann var svo elskulegur að bjóða mér) þar sem ég hafði ekki annað betra að gera. Sólin skein í Kaupmannahöfn en þegar komið var út fyrir borgarmörkin sá ég mér til mikillar skelfingar að lestin þaut inn í skýjabakka! Úr því rættist þó og skýin tóku að færa sig lengra til vesturs og við tókum gleði okkar á ný. :) Þar sem strætóinn okkar að Vigen-strandpark var ekkert á leiðinni ákváðum við að ganga þangað, konan sagði að það tæki ekki nema 25 mínútur, við (alveg óþekkt bænum) héldum af stað í leiðangur og fannst það líklegast að ganga niður allar brekkur sem við fyndum því við hlytum þá að enda hjá firðinum. Eftir langan göngutúr komum við loksins að svæðinu sem að krakkarnir í bekknum hans Grétars eru að vinna með, yndislegt svæði þar sem ellilífeyrisþegar hafa komið upp fellihýsunum sínum og sátu þar úti með bjór og sóluðu sig. Við fengum okkur einnig okkar skammt af sól og Grétar sínar 300 myndir! Virkilega gaman að heimsækja Roskilde og komast aðeins út fyrir borgarmörkin í "sveitasæluna".

Föstudagur, 13. apríl
Við hittumst um 5 leytið og héldum í 35 mínútna strætóferð til IKEA. Við iðuðum bæði í skinninu af eftirvæntingu þar sem IKEA ferðir eru eitt af því skemmtilegasta sem að við gerum! Í IKEA var mikið og margt að sjá og vorum við búin að eyða FULLT af peningum (í huganum reyndar) en úti enduðum við sátt með 20 kíló af vaxi og þvottabursta. Ekki fór mikið fyrir eldamennsku þetta kvöldið þar sem við vorum södd og sæl eftir pulsu og Faxi Kondi restaurant a la IKEA. Síðar um kvöldið átum við á okkur gat af Djúpum og létum verða af því að horfa á Sentinel, ágæt mynd. Eru það bara við sem erum svona klikkuð eða eru fleiri þarna úti sem elska að fara í IKEA, versla í huganum og kaupa KERTI!!!!!!

Laugardagur, 14. apríl
Í dag var ekkert sem hét leti! Við ákváðum að láta verða af því að hjóla til Charlottenlund og taka með okkur nesti. Dagurinn var í alla staði FULLKOMINN fyrir túra af því tagi, hitinn var um 20 stig og blankalogn. Ég tók því upp sólbrillurnar og hlýrabolinn og var tilbúin í langt ferðalag. Við hjóluðum á Græna drekanum og Gulu eldingunni að ströndinni í Charlottenlund. Þar var múgur og margmenni og við gátum ekki annað gert en að setjast niður í blíðunni með góða bók meðan við "wörkuðum taaanið". Ég var hins vegar æst í að halda áfram, langaði mikið til að finna Klampenborgar kastala þar sem sagt er að sé reimt! Við hjóluðum því áfram en án árangurs..... Við eigum þó eflaust eftir að fara þangað aftur þar sem þetta er svo fallegt svæði og villurnar, já maður væri sko alveg til í að eiga strandhús í Charlottenlund. Ég væri sko ekkert á móti því! Við komum illa brunnin og dauðþreytt eftir rúmlega 30 km hjólatúr......við eigum eflaust eftir að steinsofna í kvöld með bros á vör.

Við sendum ykkur sólargeisla til Íslands og góða strauma til þeirra sem eru í próflestri! :)

Sólstrandakveðjur frá Ama'r,
Arndís & Grétar


Í spilun: Eros Ramazotti og Tina Turner - Cose Della Vita

P.S. Grétar er búinn að sitja sveittur við að hlaða GLÆNÝJUM myndum inn á myndasíðuna okkar. Það eru tvær nýjar möppur.....klikkið hér til að fara beint inn á síðuna eða klikkið á linkinn í hægri dálknum. Lykilorðið á myndasíðuna er millinafn Arndísar með litlum stöfum.....ef þið munið það ekki þá getið þið haft samband.

mánudagur, 9. apríl 2007

Til hamingju með daginn!!! :)

Mikill og merkilegur dagur í dag, Grétar og Hanna eru 22 ára! :) Óska ég þeim innilega til hamingju með daginn og vona að dagurinn hennar Hönnu hafi verið örlítið betri en dagurinn hans Grétars! ;) Greyið þurfti að rífa sig á lappir snemma, út á flugvöll, sitja í flugvél í tæpa 3 tíma og svo upp í skóla að vinna. Við höldum nú samt upp á daginn hans seinna þegar við höfum tíma, gerum okkur dagamun og höfum það gott.


Þúsund afmæliskossar til ykkar beggja! :)

Arndís