miðvikudagur, 30. maí 2007

Maður skotinn í höfuðið á Amager

Tekið af mbl.is:

Kaupmannahafnarlögreglan lýsir eftir vitnum að óútskýrðri skotárás sem gerð var á 26 ára karlmann á Amager í gærkvöldi. Samkvæmt Berlingske Tidende munaði millimetrum á að maðurinn létist er hann fékk skot í höfuðið þar sem hann sat fyrir framan tölvu í íbúð sinni á Frankrigsgade á Amager.

Maðurinn sat og spilaði tölvuleik er byssukúlan fór inn um gluggann og í nef hans. För kúlunnar stöðvaðist í kinnbeini hans undir öðru auganu.

„Hann hefur lýst atvikinu sem svo að hann hafi heyrt sprengingu og svo tók hann eftir því að hann væri með blóðnasir. Hann hringdi í föður sinn sem ók honum á slysavarðstofu þar sem kúlan uppgötvaðist,” sagði varðstjóri rannsóknarlögreglunnar í Kaupmannahöfn í samtali við Ritzau fréttastofuna.

Þetta er bara nokkrum götum frá okkur. Það hafa verið ansi margar skotárásir og morð síðustu vikur í Danmörku. Maður verður greinilega að fara að vara sig þegar maður er að læra......heima hjá sér!


sunnudagur, 20. maí 2007

Tími til kominn!

Það er tími til kominn að ég komi með færslu á þetta bloggi. Margt og mikið er búið að gerast síðustu daga, matarboð, heimsókn, Friends gláp og fleira.

Fyrir rúmri viku síðan var okkur boðið í matarboð til vinafólks mömmu og pabba, það er svo sem ekki frá sögu færandi nema hvað að á leiðinni heim var hjólað yfir mig! Þegar við stigum út á strætó fyrir utan heima hjá okkur fékk ég hjól í síðuna á mér. Ég tók ekkert eftir stelpu sem kom á fleygjandi ferð niður eftir hjólastígnum og þessi freðna ýsa er ekkert að hægja á sér þegar hún sér strætóinn stoppa og fólk fara út, neinei hún heldur áfram og hjólar
Á mig! Við höggið stoppar hún og ég hélt þá að hún myndi hleypa mér framhjá, ég held nú ekki, hún heldur áfram að spóla í sömu förunum og er ekkert að gefa sig, ég ýti að sjálfsögðu á móti...ætla sko ekki að leyfa svona dónum að fá sínu framgengt! Að lokum eftir mikinn bardaga á miðjum hjólastígnum kemst ég upp á gangstéttina og hún áfram....ég læt þó ekki þar við sitja og kalla á eftir henni að hún ætti sko að læra umferðareglurnar og kurteisi!

Friends er uppáhaldið þessa dagana! Vinkona mín lánaði mér allar seríurnar og er ég búin að sitja eins og límd við skjáinn þegar ég kem heim á kvöldin, Grétar fær að horfa á einn og einn þátt þegar hann tekur sér pásur. Þetta er svo skemmtilegt, ég var sem sagt ekki með Stöð 2 þegar ég var yngri svo ég er að sjá flesta þættina í fyrsta skipti sem gerir þetta enn skemmtilegra! :)

Anna María kom síðan til Kaupmannahafnar á föstudaginn og fékk að vera hjá okkur, þetta var hennar fyrsti á
fangastaður á leiðinni til Tælands. Eftir vinnu hjá mér á föstudaginn fórum ég og hún út að borða og á pöbbarölt, enduðum inn á frábærum bar þar sem var Live tónlist, þeir voru ofsalega góðir svo ég mun héðan í frá taka gesti með á þennan stað á föstudögum. Um tvöleytið voru augnlokin orðin frekar þung svo við héldum heim á leið þar sem við hittum Grétar, hann var einnig dauðþreyttur eftir LANGAN dag í skólanum.
Laugardagurinn fór í rölt í bænum og rólegheit, Anna María eldaði svo góðan kjúklingarétt um kvöldið og við fórum í Tívolí, Grétar gaf sér tíma til að líta af teikningunum og naut kvöldsins með okkur. Við Grétar gerðumst síðan alvöru Danir og keyptum okkur árskort í Tívolíið, borgar sig ef maður fer þangað oftar en tvisvar á ári. Anna María og Grétar voru heldur betur köld að mínu mati og fóru í fallturninn...eitthvað sem ég mun ekki gera á minni ævi, ég hins vegar naut þess að sjá þau fara. Þegar úr honum var komið sögðu þau bæði að þetta hafi sko ekki verið neitt mál, ég ætti að drífa mig í þetta. Ég held því hinsvegar fram að þetta hafi verið plott hjá þeim, þau hafa bæði verið með hlandið í buxunum alla leiðina en bara sagt þetta til að koma mér í blessaða tækið. Ég fór hins vegar í rússíbana með Önnu Maríu og skemmti mér konunglega! :)
Í dag vöknuðum við snemma því Anna María þurfti að vera komin út á völl um 11 leytið, fengum okkur morgunmat og spjölluðum saman. Það er hálf tómlegt að hún sé farin, þótti voðalega vænt um að hafa fólk í húsinu...en það mun ekki líða langt þangað til að næstu gestir koma. :)

Takk fyrir tvo frábæra daga Anna María, var virkilega gott og gaman að hafa þig...þú veist að þú ert ávallt velkomin! :)

Ég læt þetta nægja í bili ætla að halda áfram að eiga rólegan sunnudag! :)

Kær kveðja,
Arndís

mánudagur, 14. maí 2007

Óeirðir í Christaníu!

Það var allt brjálað fyrir utan Christaníu þegar ég var á leið heim úr skólanum (um kl. 18). Það voru a.m.k. 50 lögreglumenn (sem ég sá) sem voru að setja upp vegartálma svo ég átti í mesta basli með að komast frá skólanum og heim. Á politiken.dk stóð að verið væri að mótmæla niðurrifi einhvers húss inni í Christaníu. Klikkið hér og þá sjáið þið myndband af litlu báli sem er akkúrat á hjólaleiðinni minni. Á myndbandinu sést líka gömul kona á hjólastól sem er ekkert að forðast óeirðirnar. Hún keyrir bara beint að ólátabelgunum. Svo eru litlir krakkar sem fengu næstum því grjót í hausinn en Christaníu-gengið var einmitt að kasta að löggunni sem var að keyra framhjá barnaskólanum. Vildi bara koma með smá "inside" fréttir frá København! Þið getið fylgst betur með þessu á t.d. politiken.dk og æft ykkur í dönskunni í leiðinni.

Kv. Grétar

laugardagur, 5. maí 2007

Bededag / Vaffler

Í gær var hinn stóri "Bededag" í Danmörku og flestar verslanir lokaðar í landinu. Arndís átti því frí svo ég ákvað að taka mér líka frí af því að hún átti svo að vinna alla helgina. Við sváfum út og skelltum okkur svo í göngutúr í góða veðrinu. Við gengum um huggulegar götur Christianshavn, fengum okkur ís á Nyhavn og enduðum svo í hallargarðinum þar sem við lágum á bekkjum eins og verstu rónar. Þegar hitinn var að verða óbærilegur þá hjóluðum við heim, fengum okkur einn sumarkokteil og horfðum á örfáa Friends-þætti á meðan mexíkanska súpan var að malla á hellunni.

Í morgun fór Arndís eldsnemma í vinnuna og ég fór upp í skóla. Það var alveg hrikalega erfitt að sitja inni og vinna á meðan sólin var að grilla á mér vinstri hliðina (í gegnum rúðuna). Held að ég þurfi að hengja upp gardínur eða eitthvað. Ég notfærði mér veðrið og tók myndir af "Klifurturninum" sem ég byggði í mars. Ef einhver vill sjá betri myndir af módelinu (sem er gert úr rúmlega 1000 smábitum) er hægt að smella hér eða á linkinn á myndasíðuna okkar sem í hægri dálknum (lykilorðið er millinafn Arndísar með lágstöfum). Þegar klukkan var að ganga sjö brunaði ég heim og hitti þar Dísu litlu. Við borðuðum restina af þessari yndislegu súpu og svo sá ég um eftirréttinn. Ég ætlaði að vera svo myndarlegur og baka vöfflur. Eins og þið sjáið á myndunum þá gekk það alveg glimrandi vel! Vill einhver koma í heimsókn og fá sér vöfflur......ég lofa að baka ekki! :)

Ætlum núna að skreppa í heimsókn til Bjargar, háma í okkur slik og horfa á fleiri Friends-þætti.

Grétar