miðvikudagur, 31. október 2007

TIL HAMINGJU!!!

Mig langar að tileinka þessa færslu bróður mínum, Davíð Erni, en hann var valinn "Matreiðslunemi ársins 2007" í gær. Kom mér svo sem ekki á óvart þar sem hann er snilldar kokkur! :) Hann fer því með landsliðinu að keppa á Norðurlandameistaramóti og það vill svo skemmtilega til að það verður haldið í Óðinsvéum hér í Danmörku og mun ég sko ekki láta mig vanta þar!

Davíð er lengst til hægri á myndinni...myndarstrákur! ;)


Ég er ofsalega stolt af þér, þú átt eftir að ná langt!

Kveðja,
Arndís Huld


mánudagur, 29. október 2007

100 færslur komnar!

Jæja, þá erum við búin að skella nýjum myndum inn á myndasíðuna. Þið getið klikkað hér eða á linkinn í hægra dálknum á bloggsíðunni. Lykilorðið á myndasíðuna er skammstöfunin á gamla menntaskólanum okkar (með litlum stöfum).

Íbúðin er ekki alveg fullkláruð en svona lítur
hún allavega út í augnablikinu.

En til gamans má geta að þetta er einmitt hundraðasta færslan sem við skrifum!!! Netið kemst vonandi í lag hjá okkur í vikunni.....en á meðan laumumst við inn á netið hjá nágrannanum. Honum er nær að læsa því ekki. Nei, nei....við notum það voðalega lítið því við kunnum ekki við að vera mikið inn á því. En hafið það gott og vonandi fara færslurnar að koma reglulega inn núna. Það er farið að róast "aðeins" hjá okkur núna!

Á fóninum: Sour Times - Portishead

föstudagur, 26. október 2007

Jææjaaa!

Við sitjum núna uppi í sófa og erum að hafa það kósý fyrir framan sjónvarpið. Arndís er að horfa á einhvern hundleiðinlegan dansþátt og ég er að blogga......en hún fylgist með mér með öðru auganu. Við erum búin að búa í tæpar 2 vikur á nýja staðnum. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða! Það er búið að vera alveg brjálað að gera....flytja, lappa upp á gömlu íbúðina og þrífa hana hátt og lágt, koma sér fyrir á nýja staðnum, skólinn, karfan o.fl. En þetta er búið að ganga mjög vel enda er þetta í þriðja skipti sem við flytjum í nýja íbúð.

Þetta er brot af draslinu okkar (tekið á Holmbladsgade)

Nýja íbúðin er næstum því tvöfalt stærri en herbergið á Holmbladsgade og á alveg frábærum stað. Erfitt að segja hvort hún sé á Islandsbrygge eða Ørestad en það má segja að við séum á landamærunum. Það er svipað langt fyrir mig í skólann en hún Dísa litla þarf ekki að hafa mikið fyrir því að koma sér í skólann. Islandsbrygge-metróstöðin er í 2 mínútna göngufæri frá blokkinni og svo er skólinn hennar alveg upp við Fredriksberg-metróstöðina. Lúxus eða hvað?

Tom Kristensens Vej um kl. 19.30.
Við búum á 3. hæð fyrir miðju!


Ætla að njóta þess að vera í fríi í kvöld og snúa mér að sjónvarpinu....sænska dansþættinum var að ljúka. Skiiiitbraaaaa! Á morgun þurfum við svo að læra á fullu og svo fer ég út á land að keppa á sunnudaginn. Tók nokkrar myndir af húsinu þegar ég kom úr skólanum. Ætla að reyna að klára að ganga frá íbúðinni í pásunum mínum á morgun og vonandi næ ég svo að smella nokkrum huggulegum myndum af íbúðinni.

Góða helgi,
Grétar.....og Arndís

Á fóninum: Private - My Secret Lover (nýtt dansk lag með "eighties fíling")

fimmtudagur, 18. október 2007

Brjálað að gera!

Þið verðið að afsaka hvað við erum búin að vera ódugleg að blogga síðustu 2 vikurnar. Ástæðan er sú að mánudaginn síðastliðinn þá fluttum við í nýja íbúð. Það er því búið að vera nóg að gera.....Arndís í prófum, pakka niður, flytja, Grétar að keppa og skila verkefni og svo koma sér fyrir á nýja staðnum.
Það gengur eitthvað illa að koma netinu í lag á nýja staðnum en það verður vonandi komið um helgina. Við ætlum að taka nokkrar myndir af íbúðinni og hverfinu og skella því svo á myndasíðuna við fyrsta tækifæri. Þið verðið bara að bíða spennt þangað til!

Hafið það sem allra best!
Arndís & Grétar

fimmtudagur, 11. október 2007

Efterårsferie!!!

Held að það sé LÖNGU kominn tími á að ég skrifi eitthvað á bloggið okkar, viðurkenni það nú alveg að ég er nú ekki búin að vera að standa mig, ég skal reyna mitt besta til að bæta úr þessu!

Prófin eru sem sagt búin, þungu fargi af manni létt! Alltaf erfitt að fara í sín fyrstu próf í nýjum skóla, en þetta fór nú allt vel! Grétar er búinn að segja ykkur örlítið frá fyrsta prófinu, það var sem sagt í hagfræði og hagfræði/sálfræði ef hægt að er orða það þannig. Ég var ein í stofu með einni annarri stelpu og að sjálfsögðu þurftum við að setjast við hliðina á hvor annarri þó að það væru um 30 laus pláss í stofunni! :) Það var nú samt allt í góðu, þessar tvær eldri dömur sem að sátu yfir okkur voru ofsalega ljúfar og þægilegar sem að gerði þetta spennuþrungna andrúmsloft aðeins léttara. Annars var stærðfræði hlutinn (hagfræðin) á prófinn mjög sanngjarn en alltof langur. Þegar klukkutími var eftir af prófinu átti ég 13 sálfræðispurningar eftir! Mitt litla hjarta fór að slá hraðar en venjulega en sem betur fer hófst þetta allt fyrir rest...fjúff!!! Ég var þó ekki sú eina sem að hafi lent í tímaþröng því að það voru flesrir sem náðu ekki að skrifa jafnmikið og þeir hefðu viljað gera og sumir náðu ekki einu sinni að klára!

Svona leit ég út þangað til í gær....

Seinna prófið mitt var í gær, Descriptive Tourism, Statistical Methods and Culture Statistics, segir þetta ykkur eitthvað? Nei, segir mér heldur ekki mikið....allavega, þetta var nú meiri vitleysan, við fengum aldrei heimaverkefni í þessum kúrs, fengum kennslu í eina og hálfa klukkustund í Excel, 70% af námskeiðinu fór í fyrirlestra á Tourism-geiranum og öllu því sem því kemur og 30% var tölfræði. Prófið var hinsvegar byggt upp þannig að engin spurning kom úr Tourism-geiranum, við þurftum að gera 8 gröf í Excel og allt prófið snérist um tölfræði....mikið samræmi? Þetta fór þó líka vel...eða við skulum vona það! :)

Það er nú samt heldur betur búið að dekra við mig meðan ég var í próflestrinum. Hann Grétar minn stóð sveittur yfir pottunum, eldaði á hverju kvöldi fyrir mig, vaskaði upp, bakaði og ég veit ekki hvað og hvað! Hef nú heldur betur nælt mér í ágætt mannsefni! :) Nú er bara komið að mér að dekra við hann, 3 erfiðar vikur framundan hjá honum og mikið að gerast hjá okkur næstu daga og þar sem ég er í fríi þá verður það ég sem stend yfir pottunum.

Halloween í Tivoli

Annars er allt gott að frétta, haustið er að koma...það þýðir sem sagt að það þurfi að skrúfa frá ofnunum. Menningarnótt er á morgun og Halloween í Tivoli um helgina svo við ætlum að reyna að kíkja í bæinn annað kvöld. Annars eru spennandi tímar framundan hjá okkur...meira um það í næstu viku! :)

Hafið það gott!
Arndís Huld

Á fóninum: Tears Dry On Their Own - Amy Winehouse

mánudagur, 8. október 2007

Arndís búin með eitt próf!

Já, hún Arndís litla er búin með fyrra prófið. Hún sat í stofu með einni annarri píu og tveimur krúttlegum gömlum konum sem áttu að passa svo þær svindluðu ekki. Það er aldeilis gæslan í þessu skóla! Síðan þurfti 3 kópíur af hverju svarablaði.....hmmmm....sem þýðir að Arndís skilaði 45 blaðsíðum sem var síðan deilt í þrjú umslög. Því miður gleymdu gömlu kellurnar að láta stelpurnar fá "kalkpappír" þegar prófið byrjaði svo Arndís þurfti að skrifa fyrstu blaðsíðuna þrisvar sinnum. En eftir alla erfiðisvinnuna þá fékk hún loksins þennan kalkpappír og gat hún þá skrifað svo það þrykktist á tvö önnur blöð á sama tíma......sparaði smá vinnuna. Til að gera aaaaaðeins meira vesen þá þurfti hún að skrifa sumt inn í tölvu......vááá....þá er nú system-ið í HÍ miklu miklu betra. En Arndísi gekk vel í prófinu svo núna er bara að massa prófið á miðvikudaginn. Eftir það er hún komin í 12 daga vetrarfrí!

Þessar CBS-píur eru ekki svona brosmildar í augnablikinu

Ég er byrjaður í enn einni hópavinnunni......EN núna lenti ég loksins í góðum hóp. Við erum 5 í hópnum og það er einn frá hverju ári. Allir eru mjög duglegir svo vinnan dreifist jafnt á alla! Ég á það stundum til að lenda í að þurfa að gera öll skítverkin á meðan restin af hópnum er heima að bora í nefið. Ég er því alveg himinlifandi og í kvöld var ég kominn heim úr skólanum kl. 19. Bara frí í kvöld svo ég ákvað að koma með stutta bloggfærslu......voðalega lítið að frétta af okkur annars. Í kvöld ætla ég svo að hanga á "Facebook-inu" og reyna að bæta öll high score-in í Game Arcade. Þeir sem vita um hvað ég er að tala skjálfa örugglega núna eins og hríslur!!!

Bestu kveðjur,
Grétar Örn

Á fóninum: Losing Every Day - Dikta