Jæja þá er ég komin í jólafrí! :) Kláraði prófin í fyrradag, gekk nú bara alvega ágætlega. Voðalega skrýtið að vera komin í frí og þurfa ekki að líta í bók næstu 7 vikurnar! Ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér, finnst ég vera að svíkjast undan.
Í gær var "Julefrokost" hjá deildinni minni í skólanum, áður en þangað var haldið hittumst við nokkur heima hjá okkur og höfðum það huggulegt með jólaglögg, piparkökur og fleira góðgæti og hlustuðum á jólalög. Þetta var nú hreint út sagt ömurlegasti Julefrokost sem ég hef farið á! Þurftum að borga 200 DKK fyrir kvöldið það eina sem við fengum fyrir þennan pening var mjög takmarkað magn af vondum mat! Stemningin var frekar misheppnuð, nefndin sem skipulagði kvöldið voru búin að búa til V.I.P svæði fyrir þau sjálf þar sem engum öðrum var leyft að koma....frekar halló! Við Svíarnir ákváðum því að yfirgefa staðinn upp úr hálf 11 og settumst niður á kaffihús. Það var þó greinilegt að við vorum ekki búin að jafna okkur eftir lítinn svefn síðustu vikurnar þannig við fórum öll heim um hálf tólf leytið.
Svíarnir mínir, fínir og sætir á leið á Julefrokost!Það er þó búið að plana næstu viku nokkuð vel, svo það er ekki hægt að segja að maður sitji auðum höndum! Vinna, skemmta sér, út að borða, ferð til Malmö (kannski), pakka fyrir Íslandsför og ég veit ekki hvað og hvað.
Grétar er á fullu í skólanum, hann á að skila verkefni á föstudaginn eftir viku. Ég hef nú minnstar áhyggjur af honum, hann rúllar þessum verkefnum upp eins og alltaf.
Hlakka til að sjá ykkur öll eftir rétt rúmlega viku!
Kv. Arndís